Skilmálar

Almennir skilmálar vegna kaupa lyftumiða og annars á internetinu

Skilmálar þessir eiga við samskipti milli Skíðasvæði Tindastóls (söluaðili) og þeirra aðila sem kaupa þjónustu/miða á heimasíðu söluaðila eða samstarfsaðila þeirra á vereldarvefnum. Þessir skilmálar eiga við um lyftumiða, aðstöðu, gistingu, afþreyjungu og kaup á öðrum vörum eða þjónustu. Eða samsetningu þessarra þátta.

Söluaðili:
Skíðasvæði Tindastóls
Skagafirði
Víðigrund 5
550 Sauðárkrók, Iceland
Sími: 4536707
Netfang: midar@skitindastoll.is

1. Ábyrgð kaupanda

Kaupandi skal ávallt lesa og kynna vel upplýsingar um það sem kaupa skal áður en bókun er kláruð og send. Kaupandi er ábyrgur fyrir því að tryggja að kaup hans séu í takt við eigin óskir.Það er einnig á ábyrgð kaupa að fylgjast með a upplýsingar sem hann fær sendar með staðfestingu (aðeins í tölvupósti) séu í samræmi við það sem viðkomandi skráði inn við pöntunina.

2. Lyftumiðar

Til að geta keypt lyftumiða þarf ávallt að nota vasakort. Upplýsingum um keyptan lyftumiða er hlaðið niður á vasakortið í fyrsta sinn sem notandinn fer í gegn um hlið við lyftu skíðasvæðisins. Vasakortið er skráð á einstakling og á botni þess er vasakortsnúmer (t.d. 01-1614 7200 2500 3445 8000-01) sem nota verður við kaup á miðum á vefnum til að hægt sé að endurhlaða lyftumiðunum inn á rétt vasakort.

3. Framkvæmd pöntunarinnar

Eftir að hafa réttilega framkvæmt greiðslu á netinu munt þú fá senda kvittun með tölvupósti. Kvittunin innheldur allar upplýsingar um kaup þín á netinu og getur verið gott að hafa hana með sér á skíðasvæðið.

Pöntuninni er ekki lokið og er því ógild í eftirfarandi tilfellum:

Notandinn hefur ekki fengið sendan tölvupóst með staðfestingu bókunar eða bókunarnúmeri,

Greiðsla hefur mistekist eða hætt hefur verið við hana. Greiðslan mistekst eða er ekki rétt þannig að upphæðin dregst ekki af reikningi notanda. Ef þetta hendir munu bókanirnar renna út og verða ógildar.

Ef þu ert í vafa um hvort bókunin þín hefur tekist hafðu þá samband við okkur:

Sími: 4536707

Netfang: midar@skitindastoll.is

4. Greiðsla

Við notum greiðslugátt Valitor og hægt er að greiða með Visa og Mastercard kortum. Þriðji aðili hefur ekki aðgang að persónuupplýsingum þínum né greiðslukortaupplýsingum. Valitor notar öryggar samskitaleiðir (Secure Socket Layer (SSL)) við flutning persónulegara gagna. SSL útbýr öruggt (dulkóðað) samband milli tölvunnar þinnar og Valitor. Á þennan hátt eru upplýsingarnar sendar öruggar á milli án utanaðkomandi aðgangs.

5. Réttur til úttektar

Þegar miðar eru keyptir á netinu er ekki réttur til að hætta við eða endurgreiða miðanna. Þetta á einnig við um pakka og/eða tilboð sem í boði eru ákveðna daga. Né þegar keyptur er lyftumiði fyrir ákveðna dagsetingu vegna viðburðar.

Viðskiptavinur getur í ljósi veikinda eða meiðsla óskað eftir endurgreiðslu kostnaðar sem hlýst þann tíma sem viðskiptavinurinn getur ekki nýtt kortið. Hægt er að óska eftir því að læknisvottorði sé skilað ef farið er fram á endurgreiðslu sökum veikinda/meiðsla. Lyftumiðum skal þá skila inn svo fljótt sem auðið er.

6. Breytingar á sköttum/gjöldum

Ef breytingar eru gerðar á sköttum eða öðrum opinberum gjöldum sem hafa áhrif á kostnað skíðasvæðisins vegna lyftumiðanna/þjónustunnar eftir að greiðsla hefur farið fram, mun kostnaðnum vera bætt við pöntunina eftirá. Tilkynna skal um verðbreytinguna samstundis.  

7. Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila

8. Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.